Kaupstaður fasteignasala ehf kynnir eignina Ármúli 40, 108 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 201-5527 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Ármúli 40 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-5527, birt stærð 233.5 fm.
Eignin er á 1. hæð í atvinnuhúsnæði við Ármúla 40. Inngangur er að mestu leiti nýlega uppgerður. Gengið er inní bygginguna á vinstri hlið frá vegi séð en annar starfmannainngangur er að baka til við húsið. Þegar gengið er inn bakinngang eru tvö stór herbergi á gangi með beinum inngang í hvort. Öruggur leigusamningur til 4ra ára.
Góð fjárfesting fyrir fjárfesta og aðra sem vilja fá góða ávöxtun á eigið fé.
Húsið er í góðu ástandi.
Gagnkvæmur forkaupsréttur er á eignarhluta a og b samkvæmt eignarskiptalýsingar frá 26. nóvember 1987. Þar sem seljandi er eigandi að báðum hlutunum afsalar hann sér forkaupsrétti á b hlutanum sem hann er að selja.
Nánari upplýsingar veitir Einar G Harðarson Löggiltur fasteignasali, í síma 662 5599, tölvupóstur
[email protected]Nánari upplýsingar
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 50.000 - 75.000 kr. af skuldabréfi.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.