Velja

Seldu með fasteignasala

frá 329.000 kr.

Seldu sjálf/ur

frá 99.000 kr.

Velja
Grunnur
99.000 kr.
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Plús
164.000 kr.
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Gull
329.000 kr.
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Platína
489.000 kr.
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Pakkar
Aðgangur að rafrænu kerfi*
Fasteignasali ber ábyrgð á frágangi**
Fasteignasali sér um - verðmat
Fasteignasali sér um - söluyfirlit
Fasteignasali sér um - kauptilboð
Fasteignasali sér um - kaupsamning
Fasteignasali sér um - þinglýsingu
Fasteignasali sér um - afsal
Myndataka atvinnuljósmyndara
Fasteignasali heldur opið hús
Fasteignasali sýnir íbúð
Grunnur
99.000 kr. 
Plús
164.000 kr.
Gull
329.000 kr.
Platína
489.000 kr.

*Öll nauðsynleg skjöl og leiðbeiningar eru innifalin í rafrænu kerfi

**Löggiltur fasteignasali ber ábyrgð á frágangi kaupsamnings og afsals

Kaupstaður kynnir
Skoða nánar
Seljudalur 9, 260 Reykjanesbær
Herbergi:Forstofu: er með flísum á gólfi og skáp.Sjónvarpshol er með parketi á gólfi.Baðherbergi númer 1: með dökkri innréttingu, baðkari og sturtu. Flísar á gólfi og baðplötur frá Þ.Þorgrímssyni á veggjum.Baðherbergi númer 2 með ljósri innréttingu og sturtu. Flísar á gólfi og baðplötur frá Þ.Þorgrímssyni á veggjumSvefnherbergi númer 1: Parketi á gólfi.Svefnherbergi númer 2: með fataskápum. parketi á gólfi.Svefnherbergi númer 3: með fataskápum. Parket á gólfi.Svefnherbergi númer 4: með fataskápum. Parketi á gólfi.Þvottahús með innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.Stofa / borðstofa : er í sameiginlegu rými og með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á verönd.Geymsla númer 1 Geymsla tengir saman þvotthús, forstofu og bílskúr .Eldhús númer 1: með fallegri hvítri innréttingu með góðum glugga . Það er innbyggður Ísskápur, frystiskápur, uppþvottavél,örbylgjuofn og bakarofn. Gott skápa og vinnupláss. Parket á gólfi.Eldhús númer 2: með fallegri hvítri innréttingu og gaseldavélGarður til séreignar: með grasi .Útsýni: Frábært útsýni.Verönd: Stórfín verönd snýr í suðvestur hluta til yfirbyggð með heitum potti.Kaldur skúr 15 fm. Við hliðinni á veröndinniBílskúr: rúmgóður með gluggum. Epoxy á gólfi.Bílaplan og stétt er steypt með hitalögn.Mikil lofthæð er í húsinu og innfelld Led lýsing í öllum rýmum.Gólfhiti er í allri eigninni.
Einbýlishús
5
200.2m²
106.800.000 kr.
Skoða nánar
Skipholt 62, 105 Reykjavíkurborg
Falleg og björt efrihæð með sér inngangi og bílskúr. Sér bílastæði fyrir allt að þrjá bíla. Stutt í alla þjónustu, skóla og íþróttir.Forstofa: Gott rými með flísum á gólfi. Góður fataskápur. Það er gengið upp stiga í íbúðina.Eldhús : Opið rými með miklu skápaplássi og steyptri borðplötu. Stór eldhúseyja með 90 cm gaseldavél og bakaraofni. Innbyggð uppþvottavél og pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Gegnheilt parket á gólfi og góðir gluggar.Stofa / borðstofa : Opið rými með eldhúsi og útgengið út á svali. Stór arinn í stofunni. Gegnheilt parket á gólfi og góðir gluggir.Baðherbergi : Stórt flísalagt baðherbergi, baðkar og sturta. Stór speglaskápur og góð innrétting. Vola tæki.Hjónaherbergi : Hjónaherbergið er með góðu skápaplássi og fataherbergi. Harðparket á gólfi og glugga.Svefnherbergi : Með skápaplássi , parket á gólfi og glugga.Svefnherbergi : Með skápaplássi , parket á gólfi og glugga.Hægt að sameina minni herbergi í eitt, léttur veggur á milli.Þvottahús : Með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, snúrum og skolvask. Pláss fyrir þvotta snúrur. Nýtist einnig sem geymsla.Gestasalerni: Flísalagt gestasalerni með stórri sturtu. Vola tæki.Geymsla : Er í bílskúrnum.Svalir: Úr opna rýminu.Bílskúr: 25,9 m2 bílskúr með bílastæði fyrir framan.Sameign: Sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Lagnakompa og góð sorpgeymsla.HleðslustöðHiti í bílaplani framan við hús.Stutt í alla þjónustu og samgöngur.Að sögn seljanda hannaði Guðbjörg Magnúsdóttir, arkitekt, allar innréttingar sem erusérsmíðaðar. Gegnheilt bambus parket er á gólfum ásamt flísum. Parketvar pússað og lakkað árið 2022. Innfelld ljós eru í loftum, frá LUMEX.Nýr varmaskiptir er í húsinu. Hús málað að utan árið 2017. Gott ástand á öllu.
Íbúðareign
4
211.2m²
160.000.000 kr.
Skoða nánar
Núpahraun 20, 815 Sveitarfélagið Ölfus
TIL AFHENDINGAR STRAXKaupstaður fasteignasala kynnir:Nýtt og glæsilegt raðhús við Núpahraun 20, Þorlákshöfn.Nýtt, fallegt, 148,4 m2 endaraðhús með 3 svefnherbergjum ásamt sérstæðu herbergi með sérinngangi og glugga í enda bílskúrs. Mikil tækifæri í að breyta í auka íbúð með góðum tekjumöguleikum Anddyri. 3 rúmgóð svefnherbergi. Eldhús og stofa í rúmgóðu opnu rými. Mikil lofthæð Baðherbergi með „walk in „ sturtu. Lofthæð í hæsta punkti 4.5m Þvottahús. GeymslaHúsið er timburhús, klætt að utan með dökkgráu bárustáli með hvítri timburklæðningu í innskotum og hvítum gluggum og hurðum og svörtu þakstáli.Veggir fullmálaðir í hvítum lit. Hvítar innihurðar.Á þaki er Ranilla stallað þakstál svart. Álrennur eru utan á þakkanti.Dúkaloft frá Parka (Pongs).Gluggar eru viðhaldsfríir PVC gluggar frá viðurkenndum aðila, hvítir RAL9010 að innan og utan.Gólfhitalagnir lagðar og tengdar saman við tengigrind. Gólfhiti tengdur og virkur. Stýringar fylgja ekki.Rafmagn fullfrágengið.Fallegt harðparket í herbergjum, stofu, eldhúsi.Innbyggður ísskápur fylgir ásamt helluborði og bakaraofniVent Axia Svara eldhús og baðviftur, hljóðlát með ljósa og rakaskynjara auk bluetooth möguleika.Flísar á baði, þvottahúsi og anddyri.Lóð þökulögð með mulningi í plani.Baklóð snýr í suður !Gert er ráð fyrir snjóbræðslu (rör út úr húsi) fylgir ekki.Sorptunnuskýli á lóð fylgja.Gert ráð fyrir rafhleðslu fyrir rafbíla. Hleðslustöð fylgir ekki.Innréttingar og skápar fylgja.Hönnuður er Pro-Ark ehf á Selfossi.Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða netfang [email protected]
Raðhús
4
148.4m²
89.900.000 kr.
Skoða nánar
Hjarðartún 12, 355 Snæfellsbær
Kaupstaður fasteignasala kynnir mikið endurnýjað hús á góðum stað, stutt í alla þjónustu. Fallegt útsýni til sjávar og fjalla.ÚtleigumöguleikarEfri hæð 4-5 herbergja íbúð.Neðri hæð 6 herbergja íbúð og bílskúr.Endurbætur sem voru gerðar á húsinu 2019 til 2021, skipt var um alla glugga og hurðar, það var klætt að utan með bárujárni, timbri og einangrað, þakið var allt tekið í gegn sem og þakkantur og allar rennur. Húsið var drenað og skólp / pípulagnir og raflagnir endurnýjaðar. Allir veggir og loft voru heilsparslaðir og málaðir. Gólfhiti settur á neðri hæð og á efri hæð voru settir rafmagnsofnar.Rafmagnstöflur endurnýjaðar, ljósleiðari settur í húsið, einnig voru settar nýjar heimtaugar og sístreymishitarar í húsið á hvora hæð. Efri hæð skiptist í forstofu, þvottahús, hol, eldhús, stofu / borðstofu, baðherbergi og 3-4 svefnherbergiForstofa er flísalögð.Eldhús er með parket a gólfi, með nýlegri innréttingu og tækjum, helluborð, háfur og bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur við glugga.Stofa / borðstofa er rúmgóð með glugga á tvo vegu.Hol er með parket á gólfi og útgeng út á svalir.Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, handlaug með skúffu, hár skápur, spegill á vegg og sturtuklefi.Svefnherbergi 1 er með parket á gólfiSvefnherbergi 2 er með parket á gólfiSvefnherbergi 3 er með parket á gólfiSvefnherbergi 4 er gert ráð fyrir samkv. teikningu við hliðin á eldhúsi. Væri auðvelt að stúka af en er í dag opið með stofu.Geymsluloft er yfir hæðinni, aðgengi út holi.Þvottahús er flísalagt, rennihurð í holið, einnig hægt að ganga inn úr forstofu.Neðri hæð skiptist í eldhús / stofu / borðstofu, gang, 5 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.Búið er að stúka hluta af bílskúr fyrir herbergi.Forstofa er flísalögð.Eldhús er með nýlegri hvítri háglans innréttingu með viðartóna efri skápum. Innbyggð uppþvottavél, ísskápur með frysti, bakarofn og örbylgjuofn í vinnuhæð. Útgengi út í garð er úr eldhúsi.Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, walkin sturtu og innréttingu með skáp, skúffu og handlaug.Svefnherbergi 1 er með parket á gólfiSvefnherbergi 2 er með parket á gólfiSvefnherbergi 3 er með parket á gólfiSvefnherbergi 4 er með parket á gólfi og fataskápSvefnherbergi 5 er flísalagt og stúkað úr hluta af bílskúr.Þvottahús er með innréttingu fyrir þvottavél/þurrkara. Stór fataskápur.Bílskúr er skráður 21,2 m2 með bílskúrshurð. Er í dag skipt í geymslu og herbergi.Stór og góður garður með steyptum kannti allan hringinn og staurar til staðar ef vilji er til að setja girðingu. Gott bílastæði við húsið.Mjög vel staðsett hús þar sem stutt er í alla þjónustu s.s skóla, íþróttahús, sundlaug, veitingastaði og fl.
Einbýlishús
11
239.6m²
54.000.000 kr.
Hvernig sparar þú milljón?

Kaupstaður, ódýrasta fasteignasala landsins, nýtir rafræn samskipti við stofnanir og sjálfvirka skjalagerð til þess að einfalda, straumlínulaga og sjálfvirkja söluferli fasteigna. Niðurstaðan er stórfelld aukning skilvirkni við sölu fasteigna þar sem seljendur njóta stór bættra kjara og aukins vöruúrvals.

Selja með fasteignasala – Gull og Platína

Rafrænt kerfi Kaupstaðar gerir fasteignasölum Kaupstaðar kleift að bjóða framúrskarandi þjónustu fasteignasala á áður óþekktu verði.

Vertu þinn eigin fasteignasali - Grunnur og Plús

Með rafrænu kerfi Kaupstaðar er hverjum sem er fært að selja eigin fasteign með einföldum og öruggum hætti. Rafræna kerfið leiðir seljendur og kaupendur í gegnum hvert skref söluferlisins, allt frá skráningu eignar yfir í fjármögnun yfir í þinglýsingu afsals. Þá er hægt að óska eftir þjónustu fasteignasala á hvaða stigi söluferlisins sem er gegn föstu gjaldi.

Kaupstaður ábyrgist að öll skjöl séu í samræmi við lög og reglur, en seljandi ber sjálfur ábyrgð á að þær upplýsingar sem veittar eru séu réttar.

Hvernig virkar rafræna kerfið?
1

Þú skráir eignina þína til sölu í rafrænu kerfi Kaupstaðar fasteignasölu og sendir hana í auglýsingu með einum smelli á mbl.is og fasteignaleitin.is (DV) auk þess að geta deilt auglýsingu á samfélagsmiðlum.*


2

Væntanlegir kaupendur nota rafrænt kauptilboðskerfi Kaupstaðar fasteignasölu til að bjóða í eignina þína, þar sem þú samþykkir, hafnar eða gerir gagntilboð.


3

Eftir samþykkt kauptilboðs tekur rafræn gagnasöfnun vegna fjármögnunar við, sem lýkur með kaupsamningi.


4

Rafrænt greiðslukerfi heldur utan um greiðslur vegna viðskiptavina.


5

Kerfi fjárhagslegs uppgjörs sem reiknar út loka greiðslu vegna viðskiptanna.


6

Afsal.

*Fasteignavefurinn á www.visir.is er í eigu Félags fasteignasala. Félagið samþykkir ekki að einstaklingar setji sjálfir auglýsingar um eignir til sölu inn á vefinn. Ef löggiltur fasteignasali Kaupstaðar (Gull og Platína) sér um söluna þá fer auglýsing af eignin í auglýsingu hjá vísir.is

Algengar spurningar

Greiðsla fyrir notkun forritsins er innheimt þegar að gagnaöflun er lokið, við gerð söluyfirlits.

Athugið að ef hætt er við söluferli fyrir gerð söluyfirlits en eftir að notandi hefur óskað eftir að gögn sem þarf að greiða þriðja aðila fyrir (t.d. veðbandayfirlit) séu sótt mun viðkomandi samt sem áður þurfa að greiða fyrir öflun þeirra, en almennt er kostnaður vegna kaupa á slíkum gögnum hluti af greiðslu fyrir notkun á forritinu og því ekki rukkað fyrir þau sérstaklega. Athugið að engin gögn eru keypt frá þriðja aðila án þess að notanda sé gerð grein fyrir kostnaði vegna þessa og hann samþykki að gögnin séu keypt.

Nei, sé söluferli klárað greiðir þú sölulaun við fyrstu greiðslu frá kaupanda.

Í kaupsamningi er tilgreint hvenær, með hvaða hætti og hversu mikið seljandi fær greitt frá kaupanda. Þegar að komið er að greiðslu millifærir kaupandi eða lánastofnun kaupanda inn á reikning seljanda umsamda upphæð og í framhaldi staðfestir kaupandi á síðunni að hann hafi sent greiðsluna. Þá fær seljandi tilkynningu um að greiðsla hafi borist sem hann staðfestir einnig á síðunni eftir að hafa gengið úr skugga um að greiðsla hafi borist inn á reikning hans.

Standi kaupandi ekki við samninga og greiðir ekki þær greiðslur sem honum ber getur seljandi sett greiðslurnar í innheimtu, til dæmis með aðstoð lögfræðings. Gjarnan er þó hægt að leysa úr málunum með milligöngu fasteignasala sem sáttasemjara og er það almenn venja við fasteignasölu að reyna þá leið áður en lagt er af stað í innheimtu eða dómsmál, en það er þó alfarið á valdi seljanda. Skal bent á að í V. kafla laga nr. 40/2002, um fasteignakaup, er ítarleg umfjöllun um vanefndaúrræði seljanda.

Kaupstaður hefur bæði fasteignasala og lögfræðinga á sínum snærum sem seljendur geta ráðið sér til aðstoðar á föstu tímagjaldi.

Uppsett söluverð er ávallt ákvarðað af seljanda en endanlegt söluverð, sem kann að vera frábrugðið uppsetta söluverðinu, er samningsatriði milli kaupanda og seljanda.

Engar fastar reglur eða lög eru um hvernig verðleggja skal fasteign. Seljanda er frjálst að auglýsa eign sína á hverju því verði sem honum þóknast.

Hægt er að fá fasteignasala frá Kaupstað til þess að verðmeta fasteigna gegn föstu gjaldi.

Já! Lög um sölu fasteigna og skipa (nr. 70/2015) kveða á um að löggiltir fasteignasalar megi einir annast milligöngu um sölu fasteigna. Þegar að aðili selur hins vegar sjálfur eigin fasteign er um milliliðalaus viðskipti að ræða sem heimilt er að stunda án aðstoðar fasteignasala.

Nánar:

Önnur grein laga um sölu fasteigna og skipa segir “Þeim einum er heimilt að hafa milligöngu fyrir aðra um kaup, sölu eða skipti á fasteignum eða skráningarskyldum skipum sem hafa til þess löggildingu sýslumanns.“ Í umfjöllun um aðra grein laganna í frumvarpi til laganna er hins vegar sagt “Það skal sérstaklega áréttað að ákvæðið kemur ekki í veg fyrir að menn geti sjálfir selt eignir sínar og gengið frá þeirri sölu að fullu.“

Þannig er allur vafi dreginn af um rétt manna til að selja eigin fasteignir án aðkomu fasteignasala.

Einstaklingur sem selur eigin fasteign ber alltaf sjálfur ábyrgð á því að þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti séu réttar, hvort sem selt er með aðstoð fasteignasala eða ekki. Þá er seljanda skylt að greina frá öllum þeim göllum og annmörkum sem eru á eign hans og honum er kunnugt um í söluyfirliti.

Athuga skal að á kaupanda hvílir rík skoðunarskylda. Þannig getur kaupandi ekki krafist bóta vegna eiginleika fasteignar sem honum hefði mátt vera kunnugt um með ítarlegri sjónskoðun á fasteigninni, né vegna þátta sem eru í samræmi við lýsingu í söluyfirliti.

Ef í ljós kemur galli á fasteign, er það almennt undir kaupanda komið að sanna tjónið, sem og að sanna hvort seljanda hafi verið kunnugt um gallann og ekki upplýst um hann eða hvort um er að ræða galla sem seljanda var ekki kunnugt um, en telja megi rétt að hann beri ábyrgð á að hluta eða öllu leyti. Það skal sérstaklega bent á að skv. dómum í fasteignamálum er almennt talið að ekki sé um galla á fasteign að ræða ef verðmætið er minna en 10% af söluverði fasteignar. Að öðru leyti er vísað til III. kafla laga nr. 40/2002, um nánari umfjöllun um eiginleika fasteignar, galla, fylgifé o.fl.

Í mörgum tilfellum reynist vel að miðla málum milli aðila, jafnvel með aðstoð lögmanns eða fasteignasala. Dómsmál vegna galla í fasteignum geta verið mjög kostnaðarsöm og tekið langan tíma.

  • Seljandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum og hefur svo rafrænan söluferil.

  • Næst leitar seljandi að fasteign sinni í fasteignaleit Kaupstaðar. Þá tekur við upplýsingasöfnunarferill þar sem safnað er öllum viðkomandi upplýsingum um fasteignina fyrir sölu fasteignarinnar. Seljandinn er leiddur í gegnum ferlið skref fyrir skref og síðan ýmist sækir gögn sem þarf fyrir söluna sjálfvirkt til þriðju aðila eða bendir seljanda nákvæmlega á hvaða gagna hann þarf að afla og hvar þau er að finna (t.d. með hlekk á „Mínar síður“ hjá viðkomandi stofnun).

  • Samhliða upplýsingasöfnuninni býður Kaupstaður seljanda upp á að kaupa viðbótar þjónustur sem kunna að gagnast í söluferlinu, til dæmis að fá verðmat á fasteign frá fasteignasala, fá fasteignasala til þess að annast opið hús, fá ljósmyndara til að mynda fasteignina o.fl.

  • Þegar að gagnasöfnun er lokið eru útbúin söluyfirlit, yfirlitssíða fasteignar og sölusíða fasteignar. Seljandinn notar svo yfirlitssíðu fasteignarinnar til þess að skrá opið hús, auglýsa fasteignina til sölu, taka á móti kauptilboðum o.fl.

  • Væntanlegir kaupendur geta farið inn á sölusíðu fasteignarinnar, en hlekkur á hana birtist með öllum auglýsingum fasteignarinnar, sem birtast á öllum helstu fasteignasíðum. Á sölusíðunni sjást allar upplýsingar sem seljandi hefur veitt um eignina og þar getur kaupandi pantað skoðun, fengið upplýsingar um opið hús og gert kauptilboð.

  • Seljandi sér öll kauptilboð í eign sína á yfirlitssíðu fasteignarinnar. Þar getur hann samþykkt, hafnað eða gert gagntilboð. Ef og þegar kaupandi og seljandi hafa samþykkt kauptilboð fer svo af stað ferli þar sem kaupandi tryggir sér fjármögnun ef þarf, í framhaldinu er kvittað undir kaupsamning og fasteignin afhent á umsömdum tíma.

  • Lokaskrefin í ferlinu lúta svo að greiðslum á kaupverði, fjárhagslegu uppgjöri, afsali fasteignar og þinglýsingu. Vel er haldið utan um seljanda og kaupanda í gegnum allt ferlið þannig að báðum aðilum er ljóst hvert næsta skref er á hverjum tíma og hver á að framkvæmda hvað. Þá er síðan jafnframt með form að öllum skjölum og auðveldar skjalagerð með þeim gögnum sem þegar eru skráð á síðuna (t.d. að útbúa kaupsaming, afsal og fjárhagslegt uppgjör), heldur utan um öll gögn og upplýsingar um greiðslur. Á þann hátt veitir síðan allar þær upplýsingar sem þarf til að selja fasteign, sett upp í einföldum og skýrum skrefum, auk þess sem skjalagerð og allt upplýsingaflæði er eins sjálfvirkt og mögulegt er.

Kaupstaður býr sjálfvirkt til auglýsingu sem byggð er á söluyfirliti fasteignarinnar. Rafræna kerfi Kaupstaðar hefur sjálfvirkar tengingar við vefsíðurnar Fasteignaleitin.is og Mbl.is sem gerir seljendum kleift að birta fasteignaauglýsingar á þeim síðum án sérstaks endurgjalds með því einu að smella á takka.

Hver fasteign í sölu hefur sérstaka sölusíðu fyrir fasteignina. Boðið er upp á að deila sölusíðunni beint inn á Facebook, Instagram og Twitter. Jafnframt getur seljandi auglýst fasteignina hvar sem honum hentar með því að afrita hlekkinn á sölusíðuna og birta annars staðar.

Ef löggiltur fasteignasali á vegum Kaupstaðar sér um söluferilinn (Gull og Platínu pakkar) þá fer eignin í auglýsingu inn á visir.is.

Fasteignavefurinn á www.visir.is er í eigu Félags fasteignasala. Félagið samþykkir ekki að einstaklingar setji sjálfir auglýsingar um eignir til sölu inn á vefinn.

Það er hluti af skyldum fasteignasala að skoða fasteign, gera söluyfirlit og verðmeta eign. Hins vegar er það alltaf seljandi fasteignar sem hefur lokaorðið um ásett verð fasteignar. Endanlegt söluverð, sem kann að vera frábrugðið ásetta söluverðinu, er samningsatriði milli kaupanda og seljanda.

Nei, ljósmyndun er ekki innifalin en einfalt er að bæta henni við fyrir 30.000 kr. m. vsk.

Við bendum á að góðar og skýrar myndir geta haft mikið að segja við sölu fasteignar.

Já, þú getur alltaf óskað eftir auka þjónustu og starfsmenn Kaupstaðar hlakka til að aðstoða þig.

Fasteignasali ber ábyrgð á því að setja þær upplýsingar í söluyfirlit sem seljandi upplýsir hann um. Seljandi ber alltaf ábyrgð á því að þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti séu réttar, hvort sem selt er með aðstoð fasteignasala eða ekki. Þá er seljanda skylt að greina frá öllum þeim göllum og annmörkum sem eru á eign hans og honum er kunnugt um í söluyfirliti.

Athuga skal að á kaupanda hvílir rík skoðunarskylda. Þannig getur kaupandi ekki krafist bóta vegna eiginleika fasteignar sem honum hefði mátt vera kunnugt um með ítarlegri sjónskoðun á fasteigninni, né vegna þátta sem eru í samræmi við lýsingu í söluyfirliti.